- Biggies story
Birkir Örn Gretarsson
sunnudagur, september 10, 2006

Breytingar

Jæja núna er allt að gerast. Þessi færsla hérna verður seinasta færsla mín á þessari síðu...!! Þrátt fyrir að vera ekki mikill áðdáandi þeirra sem skipta um síðu jafn oft og þau kveikja á tölvunni, þá held ég að það sé kominn tími til að prufa nýjung... Ég ætla að slá upp síðu með drengnum sem ég fór í bloggkeppni við á sínum tíma og ætlum við að sjá hvort það verði ekki öllu fjörlegra.
Nýja slóðin hjá mér og jónsa er því
www.johnny-biggie.blogspot.com
Þessi síða verður þó um tíma ennþá til... sé til hvort ég eyði henni seinna með, enda margir gullmolarnir sem hafa komið hérna sem væri synd að eyða.

Ég ætla að nota þessa síðustu grein á köbenhavnerinn til að óska Oddi bróður mínum og félögum hans í 3. flokki Þórs í knattspyrnu, til hamingju með ÍSLANDSMEISTARATITILINN... þetta er glæsilegt hjá ykkur og alveg með eindæmum að þið hafið spilað taplaust sumar.

Bless og lítið á nýju síðuna


Sagði Birkir kl. 20:21


...............................................

sunnudagur, september 03, 2006

Veitekkihvaðþessifærslaáaðheita

Ég ætla aðeins að segja frá nýju uppáhalds síðunni minni. Hef reyndar vitað af þessari síðu lengi, en er bara ný farinn að nota hana. Snilld. Þessi síða kemur sér afar vel í minni stöðu, þar sem ég geymi meira og minna enga tónlist á fartölvunni minni, heldur á utanáliggjandi hörðum disk. Ég nota því þessa síðu óspart þegar ég er ekki heima eða sit með tölvunna einhverstaðar þar sem óþægilegt er að vera með diskinn. Og auðvita í vinnunni þar sem ég get oft hlustað á músík meðan ég er að gera einhver verkefni.

En annars fór ég og Bjössi á Iceland Airwaves Warmup á Vega á föstudagskvöldið. Þar spiluðu m.a. Jeff Who? sem ég haf'ði nú í raun mjög lítið heyrt af, en var helvíti sáttur við tónleikana. Er ég að sjálfsögðu búinn að redda mér lögunum (löglega eða ólöglega liggur í algjerri óvissu). Þróaðist þetta í þetta fínasta djamm þar sem meðal annars var dansað við óskalagið Im a man of constant sorrow af miklum móð (ekki spyrja).

Ekki var heldur alveg ónýtt að fara á O´learys og horfa á Ísland rústa Norður Írum á laugardeginum. Vorum við þar alveg dágóður hópur af íslendingum að horfa á leikinn, helvíti fínt. Mig er farið að hlakka til fyrir næsta leik.

Annars er það að frétta að á næstu vikum verð ég líklegast að vinna slatta með skólanum... eða í skólanum lítið með vinnunni... hvort sem maður kýs að kalla þetta. Skólinn lítur út fyrir að byrja frekar rólega og því fínt að ná að vinna slatta á þeim tíma, þar sem stundarskráin mín er frekar leiðinleg upp á það að vinna, þegar lengra er komið á haustið.

Svo má ekki gleyma að klakamótið fræga er um næstu helgi. Það er reyndar haldið hérna í köben, þannig það er ekkert ferðalag þetta ár. Meiri að segja Ísborg sem skipuleggur þetta núna, en ég get ekki montað mig yfir að hafa tekið þátt í skipulagningunni. En ég hef fulla trú á að þetta verði magnað mót og eftirminnilegt. Það stefnir allavega allt í það!

En ég ætla að reyna að vera doltið duglegri að blogga... jafnvel smá breytingar að vænta... kemur allt í ljós.

Med venlig hilsen/Best regards/Kveðja

Birkir


Sagði Birkir kl. 22:38



Mynd

Hérna er mynd sem tekin var í sumarfríinu mínu... helvíti flott mynd að mí­nu mati! Langaði bara að deila þessu með ykkur... Posted by Picasa


Sagði Birkir kl. 02:04


...............................................

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Busy

Það má aldeilis segja að það sé mikið að gera í vinnunni þessa dagana, og vildu yfirmenn mínir helst að þessi skóli væri ekki að byrja núna. En skólinn hjá mér er að byrja á fimmtudag, og er mér farið að hlakka bara ágætlega til, aldrei því vant.
En já ég hef verið að vinna alla daga frá því að ég kom úr sumarbústað með familíunni. Vann meiri að segja síðustu dagana sem þau voru hérna. Það kom þó ekki í veg fyrir að ég færi í tívolí og annað skemmtilegt með þeim. Þau fóru svo fyrir tæpum tveimur vikum og var mjög gaman að hafa þau hérna í Köben.

Bjöddn nokkur er kominn hingað til Köben og er að byrja í skóla. Hann er ekki enn búinn að finna sér húsnæði og gistir því hjá mér fyrst um sinn. Ég er svo líka að spá í að færa mig nær bænum, og erum við því að leita af einhverju sem við gætum leigt saman. Gengur frekar erfiðlega og held ég að þetta sé markaður þar sem maður þarf að þekkja einhvern sem þekkir annan... ... sem kannast við einhvern sem er að leigja íbúð. Sjáum hvernig þetta fer.

Annar er búið að rigna hérna eins og ég veit ekki hvað. Búið er að koma í fréttunum að þessi Ágúst mánuður sé búinn að slá öll met, og ekki ringt svona mikið í manna minnum. Besta dæmi um það lentum við Bjössi heldur betur í hérna um daginn. Við ákváðum að skella okkur á leik í dönsku deildinni, Bröndby - Silkeborg. Lögðum við á stað í góðu skapi og góðu veðri. En þegar við nálgumst völlinn, þá fer að rigna meira og meira og toppaði það allt þegar við komum á völlinn... Held að ég hafi aldrei lent í annari eins rigningu. Ringdi nokkra sentimetra á mjög stuttum tíma og var allt komið á flot. Rétt áður en við ætlum að borga okkur inn á völlinn er tilkynnt að leiknum hafi verið frestað vegna vatnsins... bömmer og við förum heim, hundblautir eftir fíluferð.
texti


Núna er klukkan orðinn margt... nenni ekki að skrifa meira eins og er en spurning hvort ég fari ekki að gera það meira reglulega. Læt þetta nægja í bili


Sagði Birkir kl. 23:40


...............................................

mánudagur, ágúst 14, 2006

vaka

Ég er ennþá vakandi... veit ekki af hverju... ætliði að segja mér það!!! Reyndar er ég búinn að sjá það að teljarinn minn er farinn að hægja mjög á sér! Spurning hvort það sé verið að gefa þessa síðu upp á bátinn!!


Sagði Birkir kl. 02:28


...............................................

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Sumarfrí

Það er nottla allt að gerast þessa dagana. Ég er búinn að vera í sumarfríi núna í rúma viku, og fór ég þá í sumarhús með foreldrum mínum og bræðrum. Mjög notalegt og gott að komast aðeins frá Kaupmannahöfn og ekki skemmdi fyrir að fjölskyldan væri með. Eins og staðan er núna, þá sofa bræður mínir hérna á gólfinu hjá mér... ég tók mig til og sendi mop bara út... ekki pláss fyrir fleiri á þessum bæ.
Ýmislegt hefur nottla gerst síðan síðasta bloggs. M.a. var verslunarmannahelgin! Held að ég fari nú ekki að tala mikið um hana, enda ekkert mikið merkilegt gert. Það var reyndar haldið smá hátíðlega hérna, með tilheyrandi ölvun, slagsmálum og almennum leiðindum. Var þó gaman að taka þátt í blakmótinu, og grillinu sem fylgdi á eftir. Daginn eftir þetta fór ég svo í sumarbústað, engin tölva, ekki nema 3 sjónvarpsstöðvar og sími sem var straumlaus í 3 af 6 dögum þarna. Veit nú ekki alveg hvort þetta sé hollt að skera sig svona frá siðmenningunni.

En familían á síðan eftir að vera hérna í alveg 5 daga í viðbót, og verður að sjálfsögðu ekkert annað en eitthvað skemmtilegt gert á þeim tíma. Ég reyndar verð að vinna, en það kemur ekki á sök.

Í lokinn vill ég svo hvetja til að hafa mínutu þögn... það var gamla tölvan mín sem ég sendi á eftirlaun!!! Eftir góða þjónustu síðustu 4 ár, þá sá ég að þessi tölva var ekki nógu effektiv, og því var henni skipt út fyrir yngri og betri hp tölvu. Þessi færsla er þarmeð fyrsta færslan af mörgum, vonandi, úr þessari vél. Toshiba...RIP

Læt þetta gott heita... þarf að vakna á morgun !!


Sagði Birkir kl. 01:45


...............................................

sunnudagur, júlí 30, 2006

Mótmælendur??

Þessi frétt er tekinn af mbl.is:

Innlent | mbl.is | 30.7.2006 | 17:59
Mótmælendur létu í sér heyra við Kárahnjúka

Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar létu til sín taka í dag og hófu mótmælaaðgerðir um kl. 14 sem stóðu í tvær klukkustundir um það bil. Um 50 manns tóku þátt í þeim. Gengið var frá búðunum við Snæfell að útsýnispalli við virkjunina og niður í gil sem liggur að henni. Lögreglan varaði fólkið við því að það ætti hættu á að vera handtekið og ákært. Mótmælendur tóku sér þá matarhlé við veginn sem liggur að virkjuninni og lögðust þvínæst niður í mótmælaskyni. Þeim var síðar snúið til baka að sínum búðum af lögreglu.


Ég hef ekkert á móti fólki sem mótmælir gegn því sem þeim finnst rangt á einn og annan hátt, en það sem mér finnst athyglisvert við þessa blessuðu mótmælendur er að þeir eru svona nokkrum árum of seint úti...!
Þótt svo að það hafi verið mótmælaaðgerðir fyrr, þá falla þær i sama flokk. Við hverju býst þetta fólk sem er að mótmæla virkjun sem er búið að byggja helmingin af eða hvað veit ég! Hefði ekki verið sniðugra að mótmæla virkjuninni almennilega þá þegar ákvörðunin var tekin, eða þá þegar framkvæmdirnar voru að byrja. Og ef það hefur verið mótmælt þá, þá er bara að bíta í það súra epli og sætta sig við þetta! Þetta er sóun á skattpeningum að það þurfi að draga lögregluna þangað til að sinna þessu liði. Og ekki nóg með það að sjálfsögðu: Í tveggja tíma mótmælagöngu, þá var tekið sér matarhlé... kommon!!!


Sagði Birkir kl. 23:54


...............................................

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Allt um ekkert

Ein af þeim tveimur sem lesa þessa síðu var að ýta eftir mér að blogga. Ég hélt nú því fram að engin les þetta blogg, sérstaklega yfir sumartímann. Allavega er ekki margt sem bendir til þess. Maður hefur einnig tekið eftir að bloggsíður landans hafa hrunið niður í stórum stíl og það virðist í tísku að hætta alveg að blogga. En þar sem ég fylgi ekki alltaf tískunni þá reyni ég að halda smá lífi í þessu.
Samt ein pæling í sambandi við blogg. Þeir sem blogga lítið hafa tvær afsakanir sem eru notaðar mest. Önnur er eitthvað á þá leið að það er svo mikið að gera að það gefst ekki tími til þess að blogga. Og hin er sú að það er svo lítið að gera að það er ekkert að blogga um. Það lítur því út fyrir að þeir sem blogga mikið, þeir hafa alltaf svo voða passlega mikið að gera... því það er ljóst að ef þeir hefðu minna að gera, þá myndu þeir ekki hafa neitt að blogga um, og ef þeir hefðu meira að gera, þá gæfist bara ekki tími í það...

Í framhaldi af þessu ætla ég hér að tilkynna að ég hef ekki mikið að gera þessa dagana. Sumarfríin í vinnunni gera það að það er ekki mikið að gera þar og þal. er ég í fríi alltaf hluta vikunnar. Á sama tíma er búið að vera svona 25 stiga hita lágmark á hverjum degi.
Venjulegt fólk myndi þá að sjálfsögðu bara drífa sig á ströndina... en þar sem mér finnst ekkert ægilega gaman á ströndinni, þá fer ég ekki þangað... og þar af leiðandi ekki venjulegur.
Það leiðinlega við að eiga frídaga svona á sumrin,
i dk, þegar er gott veður, er það að það eru voða fáir í sömu stöðu. Flestir eru að vinna, og þeir sem eru ekki að vinna hérna í dk, þeir eru þá bara að spóka sig í kuldanum á íslandi (sem er btw óskiljanlegt). Þetta gerir það að verkum að það getur verið erfitt að safna liði í að gera eitthvað skemmtilegt þá daga sem maður er í fríi...
Svosem ekkert að því að sitja úti í góða veðrinu og gera ekki neitt.

En hérna seinusut 3 vikur hafa hins vegar verið nýttar vel í grillmálum. Við erum hérna nokkur sem hafa stofnað grillklúbb, og höfum grillað annan hvern dag í næstum 3 vikur núna. Hrikalega næs....

En við látum þetta nægja... enda hef ég ekkert að skrifa um!!


Sagði Birkir kl. 17:46


...............................................